Gerhard KönigGerhard König högglistamaður er fæddurí Þýskalandi árið 1949. Hann nam höggmyndalist í Sviss og Þýskalandi og hefur starfað sjálfstætt að list sinni jafnframt því að kenna listsköpun í Sviss, Þýskalandi og á Íslandi. Við listsköpun sína notar Gerhard einkum rekavið og grjót. Gerhard kom fyrst til Íslands sem ferðamaður árið 1994. Eftir það kom hann hingað á hverju sumri, ferðaðist um landið og hjó út styttur, mest úr rekaviði. Árið 1998 kom hann fyrst í Selárdal og heillaðist af verkum Samúels Jónssonar sem þá voru í niðurníðslu. Frá árinu 2004 hefur Gerhard farið á hverju sumri í Selárdal og unnið að viðgerðum og endurgerð þessara fágætu alþýðulistaverka. Segja má að Gerhard hafi borið hita og þunga af endurreisn Listasafns Samúels í Selárdal. Árið 2010 flutti hann alkominn til Íslands og hefur haldið hér námskeið í högglist, leirstyttugerð og mósaik . Auk þess hefur Gerhard unnið bæði á Sólheimum í Grímsnesi og Ásgarði í Álafosskvos. · Sýningar á Íslandi: · Ráðhúsinu í Reykjavík 1998 · Dalsá í Mosfellsdal 2000 · Höggmyndagarður við Sesselíuhús á Sólheimum síðan 2003 · Álafosskvos 2013 · Verk staðsett á Íslandi: · Sólheimar í Grímsnesi · Grettisgata í Reykjavík · Hallormsstaður · Húsavík · Straumfjörður í Borgarbyggð · Dalsá í Mosfellsdal · Álafosskvos Á sýningunni "Um Tröll, gyðjur og Menn" sýnir Gerhard 15 höggverk úríslensku basalti og rekaviði. Gerhard König 2020 |
Tenglar |
© 2022 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is
Mávur l Kt.: 680509-0850 l Bnr: 0111-26-10080 l VSK 104164 l Sími: 845 1780 l Netfang: [email protected]