Tenglar
- Minsýn
- Gerhard König
- Lárus Sigurðsson
- Kley City
- Peter Lang
- Hvítahús
- Snæfellsbær
- Vesturland
- SSV
- Veður og sjólag
- Veður og færð
Eldra efni
Færslur: 2012 September
25.09.2012 21:43
Helgiganga á Gufuskálum og messa í Ingjaldshólskirkju með keltneskum brag
Sunnudaginn 30. sept. verður efnt til helgigöngu með
keltnesku ívafi sem lýkur með messu í Ingjaldshólskirkju. Lagt verður af stað
frá Ingjaldshólskirkju kl. 12 á hádegi og ekið í rútu að ,,fiskbyrgjum" við
Gufuskála. Þaðan verður gengið með keltneskan sólkross að einu byrgjanna og þar
haldin stutt helgistund. Ýmsir telja, að þessi byrgi séu eldri en talið hefur
verið og geti verið leifar af íverustöðum keltneskra einsetumanna. Þeir
dvöldust í slíkum býkúpulaga steinbyrgjum á afskekktum stöðum á Írlandi og
Skotlandi og höfðu samfélag sín á milli.
Frá byrgjunum verður ekið að Írskrabrunni, gengið að brunninum með krossinn og haldin helgistund.
Þaðan verður gengið að steinhleðslu niður við flæðarmál. Lögun hleðslunnar gæti bent til fornrar kirkju.
Þar fer einnig fram stutt helgistund. Síðan verður ekið aftur að
Ingjaldshólskirkju, þar sem messa hefst kl. 14.
Leiðsögu- og sagnamenn í göngunni verða þeir
Skúli Alexandersson og Sæmundur Kristjánsson. Sr. Óskar Ingi Ingason,
sóknarprestur, og sr. Gunnþór Þ. Ingason, prestur á Biskupsstofu á sviði
helgihalds og þjóðmenningar, leiða helgistundir göngunnar og messuna í
kirkjunni. Göngufólk og heimamenn lesa ritningarorð og fornsögutexta. Kay Wiggs
leikur á orgel og stjórnar kór Ingjaldshólskirkju.
Eftir messu verður boðið upp á kaffi og djús í
safnaðarheimiliu.
Sóknarnefnd Ingjaldshólskirkju, Átthagastofa
Snæfellsbæjar, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, lista og menningarnefnd
Snæfellsbæjar og Starfshópur þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum, standa
að þessu sérstæða helgihaldi. En það tengir saman þjóðmenningu, trú og land,
sögu og samtíð. Dagskráin er fjölskylduvæn og allir hjartanlega velkomnir.
24.09.2012 13:57
Ben Stiller

- 1