Tenglar
- Minsýn
- Gerhard König
- Lárus Sigurðsson
- Kley City
- Peter Lang
- Hvítahús
- Snæfellsbær
- Vesturland
- SSV
- Veður og sjólag
- Veður og færð
Eldra efni
27.07.2020 23:02
596 +
Nú hafa 596 gestir frá fjölmörgum löndum ritað nafn sitt í gestabók, á sýningunni "Um Tröll, Gyðjur og Menn".
02.07.2020 23:22
Sandaragleði 2020
Laugardaginn 11. júlí
Myndhöggvarinn Gerhard König verður að höggva styttu frá kl. 14:00 -16:00
KL. 16:00 mun trúbadorinn Siggi Hösk mæta með gítarinn og spila fyrir gesti.
14.06.2020 00:24
Um Tröll, Gyðjur og Menn
Laugardaginn 20. júní kl. 14:00 opnar högglistasýning í Porti við Salthús gamla Hraðfrystihúss Hellissands, Hellisbraut 1a. Aðkoma um Keflavíkurgötu.
Það eru listamennirnir Gerhard König og Lárus Sigurðsson sem sýna högglistaverk úr íslensku basalti og rekaviði. Um tónlist sér Monika Abendroth. Sýningin verður opinn út júlí milli kl.14:00 og 17:00.
12.05.2020 23:08
Útilistaverkasýning
Við vorum svo heppin að á fjörur okkar rak listamann. Við hittum Gerhard König í Stapagili þar sem hann var að höggva grjót og buðum honum að koma og skoða húsið sem við erum að gera upp. Þá fæddist hugmynd um að útbúa portið við húsið og halda útilistaverkasýningu. Gerhard kallaði til vin sinn Lárus Sigurðsson listamann og ákveðið var að þeir sýndu í Portinu í sumar.
Gerhard og Árni skoða aðstæður.
Mynd af húsinu og portinu sem tekin var áður en hafist var handa.

- 1